Egilshöllin í Grafarvogi er stærsta afþreyingar- og íþróttamiðstöð á Íslandi
Húsið er um 24.000 fm² sem skiptist í 10.800 fm² knattspyrnusal, 400 fm² skólaíþróttasal, 4000 fm² skautahöll, 800 fm² skotæfingasvæði og 8.000 fm² í ýmsa smærri sali skrifstofu, þjónustu, og margt fleira
Knattspyrnuvöllur
Knattspyrnuvöllurinn er 120×90 m eða 10.800 fm². Lofthæð er 20m yfir miðlínu. Á vellinum er gervigras 105 x 68 fm² í húsinu er aðstaða fyrir um 2000 áhorfendur í sæti og um 1000 í stæði. Knattspyrnusalurinn er nýttur fyrir knattspyrnuæfinga yngri sem meistaraflokka Reykjavíkur félaganna og keppni fyrir yngri flokka og til landsleikja
Skautasvell
Skautasvellið er 60X30 m eða 1800 fm² og er það stærð fyrir alþjóðlegar keppnir. Á efstu hæð þverbyggingarinnar. Þar er Skautafélagið Björninn með sinn heimavöll og alla starfsemi sína bæði í íshokkí og listdans á skautum. Áhorfendaaðstaða er fyrir 250 manns í sæti. Almenningur fær einnig sín tækifæri til skautaiðkunar og sama má segja um nemendur grunn- og framhaldsskóla borgarinnar sem þegar hafa sótt skautasvellið mjög mikið. Einnig hefur skautasvellið verið æfingahöll fyrir íshokkílið beggja vegna Atlandshafsins á undirbúningstíma þeirra sem er utan háannatima á svellinu hér heima.
Æfinga- og keppnissvæði fyrir skotíþróttir
Á nestu hæðinni er innanhússaðstaða fyrir Skotfélag Reykjavíkur. Skotsvæðið er það fullkomnasta á landinu innandyra.
Smærri íþróttasalir
Nokkrir smærri íþróttasalir eru á neðstu hæðinni sem eru fyrir karate, taikvondo, dans, ballett, leikfimi og þolfimi
Heilsuakademían
Heilsuakademían býður upp á landins mesta úrval námskeiða og frábæran tækjasal í Egilshöll.
Í Egilshöll er einnig snyrtistúdíó, nudd, gufa og heitur pottur. Barnagæsla er í boði fyrir viðskiptavini Heilsuakademíunnar alla virka daga kl. 9:00-11:00 og 17:00-19:30 og laugardaga kl. 9:00-11:00.
Hægt er að leigja íþróttasali í gegnum Heilusakademíuna en þeir salir sem um ræðir eru: salir Heilsuakademíunnar í Egilshöll þ.á.m. sérútbúinn herþjálfunarvöllur
Starfsfólk
Skrifstofa
Knatthús / Útivellir
Skautasvell / Íssalur
Ræstitæknar
Marcin “Moses” Maciej Mojzyszek, ræstitæknirNetfang
Beinn sími 6649606

Gunnar Jónatansson Framkvæmdastjóri
Sigurgeir Þráinn Jónsson Húsumsjón
Steinunn Ása Rekstrarstjóri
Ómar Sigurðsson
Egill Gómez Rekstrarstjóri
Magnús Örn Ragnarsson vaktmaður
Birgir Hansen, vaktmaður
Jaroslawa (Jarka) Maria Galbierz, ræstingastjóri