Við Egilshöllina eru tveir tennisvellir sem hægt er að leigja til lengri og skemmri tíma. Stakir tímar virka daga kosta kr. 3.000. Stakir tímar um helgar kosta kr. 3.500.
Ef keyptir eru 6 tímar eða fleiri í einu þá kostar hver tími kr. 2.500.
Hægt er að leigja sér spaða og kostar hver kr. 500, einnig þarf að greiða kr. 1.000 í skilagjald sem er endurgreitt þegar spöðum er skilað.
Gengið er frá greiðslum í Sportbitanum í Egilshöllinni, þar er einnig hægt að fá leigða spaða og fá keypta tennisbolta.
Nánari upplýsingar fást í símum 664-9608 og 664-9605
Tennisdeild Fjölnis æfir m.a í Egilshöll. Fyrir þá sem vilja æfa reglulega með Fjölni þá eru upplýsingar um deildina hér.

