BJÖRNINN

Björninn er skautafélag sem býður upp á bæði listhlaup og íshokkí. Félagið er með eina bestu aðstöðu í Egilshöllinni sem íþróttafélög hér á landi hafa til umráða. Allar nánari upplýsingar á heimasíðu Bjarnarins
HEILSUAKADEMÍAN

Heilsuakademían er líkamsræktarstöð í Egilshöll sem býður upp á tækjasal og landsins mesta úrval námskeiða. Einnig er í boði heitur pottur, gufa, barnagæsla, nudd og snyrtistofa.
Heilsuakademían býður upp á fjölbreytilega, heilsusamlega afþreyingu í formi ýmis konar námskeiða fyrir alla þá sem vilja stunda holla og skemmtilega hreyfingu án keppni. Heilsuakademían býður einnig upp á hópefli fyrir fyrirtæki, skemmtanir fyrir vinahópa, gæsanir, steggjanir, barnaafmæli, o.fl.
Heilsuakademían leggur megin áherslu á að veita persónlega þjónustu til að uppfylla þarfir viðskiptavina sinna. Megin starfsemin er í Egilshöllinni þar sem Heilsuakademían býður upp á frábæran tækjasal auk þess að boðið er upp á námskeið í íþróttahúsi Lækjarskóla í Hafnarfirði og sundskóla 2-5 ára í íþróttamiðstöðinni Lágafelli í Mosfellsbæ.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu Heilsuakademíunnar
SKOTFÉLAG REYKJAVÍKUR

Verið velkomin í Skotfélag Reykjavíkur.
Félagið er með aðstöðu í kjallara Egilshallarinnar
Engin aldurstakmörk eru á inngöngu í félagið, en viðkomandi umsækjandi þarf að vera orðin
15 ára til að geta hafið æfingar hjá félaginu með skriflegu samþykki foreldris.
FJÖLNIR

Fjölnir er með margar íþróttagreinar eins og sjá má á heimasíðu þeirra. Aðalskrifstofa félagsins er í Egilshöll og er síminn hjá þeim 594-9640. Netfangið er fjö lnir@fjolnir.is
