Sambíóin hafa opnað fullkomnasta kvikmyndahús landsins í Egilshöll. Öll aðstaða og tækni er eins og best verður á kosið. Fjórir salir eru í húsinu sem eru frá rúmlega 100 sætum minnst og upp í rúmlega 400 sæta mest. Allir stólar eru sérlega þægilegir og rými milli sæta er meira en gengur og gerist.
